15.9.2007 | 23:51
Sól og blíða...
Þá er önnur vika okkar í Flatey liðin og tökutímabilið hálfnað. Fram til þessa hefur allt gengið eins og í sögu, senurnar eru "klappaðar" inn hver á fætur annarri enda veðurfarið eins og eftir pöntun. Sól og stilla hérumbil hvern einasta dag, eiginlega komið fullgott af slíku og hér mætti fara að rigna aðeins og blása fyrir þær senur sem skrifaðar voru með slíkt í huga. Hér er Geir "Glæsimenni" Magnússon, yfirmaður ljósadeildar, að taka aðeins út sólina.
Leikstjórinn fækkaði sömuleiðis fötum í hitanum, en Steingrími hljóðmanni, sem sést í baksýn, þótti nóg um svækjuna og brá á það ráð að klæða af sér hitann. Með þennann höfuðbúnað gek hann undir nafninu "Abbadísin" þann daginn.
Hér er svo Sigurlaug, "Runner", eða Hlaupari, að njóta góðviðrisins, en hún hefur það hlutverk að snattast um eyjuna allann liðlangann daginn til og frá tökustað með það sem vantar hverju sinni, auk þess sem hún sinnir ýmsum öðrum störfum eftir þörfum og innir það allt vel af hendi.
Haukur kokkur naut einnig veðurblíðunnar á veröndinni við Vog, gistiheimili sem hjónin Lalli og Sísí (Jóhann Sigurðarson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir) reka með miklum myndarbrag í sögunni okkar um Jón.
Í blíðunni voru húsgögnin borin út úr Vogi og kaffið drukkið úti á túni á meðan upptökur fóru fram innandyra.
En flutningurinn út hafði reyndar lítið með sólskinið að gera. Á meðan leikmyndadeildin sá um flutningana út höfðu þeir Steingrímur og Árni hljóðmenn umbreytt veitingasal gistiheimilisins í tónleikasal og upptökuver enda voru voru stelpurnar í hljómsveitinni Aminu, Edda, Hildur, Sólrún og María, komnar til þess að leika hlutverk í kvikmyndinni og leika á létta strengi, og sagir, fyrir okkur í einn dag og á Vogi var var hljóðritað og kvikmyndað langt fram á kvöld.
Dagin eftir var enn meiri sól og Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona neyddist til þess að vefja sig höfuðdúk til þess að verja ljósa húð sína, enda rauðbirkin og ekki hægt að hætta á það að freknum fjölgað á milli upptökudaga, það gæti skilað sér í því að leikkonan hefði í kvikmyndinni t.d. fimm freknur á leiðinni inn í eldhús, en fimmtíu þegar hún kæmi til baka.
Sá sem fylgist með þess háttar hættum eða "Continuity mistökum" (Sem gæti útlagst "Samfelduvillur" við kvikmyndaupptökur, er svokölluð "Skripta". Hlutverk "Skriptunnar" er að fylgjast með því að leikarar séu í réttum búningum í réttum senum, telja hversu margar tölur eru hnepptar á skyrtum, hvoru megin við húsið guli traktorinn var staðsettur í atriðinu á undan o.sv.fr. Sömuleiðis skráir "Skriptan" niður upplýsingar frá kamerudeildinni varðandi hvaða linsur eru á tökuvélinni og hversu mörg fet fóru í hverja upptöku eða "Skot" eins og það heitir á fagmálinu.
Skriptan vinnur yfirleitt náið með svonefndum "Clapper-Loader" en hans hlutverk er bæði að sjá um að hlaða filmu í myndavélina sem og að munda "Klapptréið", en það er hvíta og svarta skiltið með sebramáluðum lista við einn endann sem hægt er að skella niður svo heyrist hvellt "Klapp" hljóð. Þessu skilti er haldið er framan við kvikmyndatökuvélina áður en hver upptaka hefst og "Klappað". Klappið þjónar þeim tilgangi að samhæfa hljóð og myndrás þegar leggja þarf báðar saman í eftirvinnslu. Á klappskiltið eru líka skráðar ýmsar upplýsingar sem verða að fylgja hverri upptöku. Númer hvað atriðið er í handritinu, sem og "Slate" númer, en nýtt "Slate" númer er skráð í hvert skipti sem skipt er um uppsetningu á kvikmyndavélinni, hvort heldur sem um ræðir nýtt sjónarhorn eða aðra linsu. Síðast er svo kallað tökunúmerið. Númer hverrar upptöku, innan hvers "Slate". Þannig að rétt áður en upptaka hefst kallar "Clapper/Loader" eða hver það er sem klappar, stundum Skriptan sjálf, annar aðstoðartökumaður eða jafnvel aðstoðarleikstjóri, eins og hjá okkur, t.d. eitthvað þessu líkt "Slate 200, Atriði 74, Taka eitt". Hér sést Pálmi Baltasarsson, sem fer með lítið hlutverk í myndinni, fylgjast íbygginn með klapptrénu rétt fyrir upptöku.
Þess má svo til gamans geta að þegar "Slate" 111, 222, 333, 444, og samsvarandi tökunúmer, 111 fyrstu töku, 222 annarri töku, o.s.fr., eru "klöppuð", þá er hefð fyrir því að "klappa á" einhverja deildina, hljóðdeild, eða ljósadeild eða búningadeild t.d. sem er þá skylt að bjóða upp á einhverskonar huggulegheit að loknum tökudegi. Súkkulaði, kampavín, nudd eða eitthvað ámóta. Sömuleiðis er hefð fyrir því að veðja á heildar "Slate" fjölda kvikmyndarinnar í upphafi kvikmyndaupptöku og hlýtur sá sem kemst næst endanlegum Slatefjölda einhverskonar verðlaun í lokahófinu. Lísa Kristjánsdóttir sem gegnir við upptökur "Brúðgumans" bæði hlutverki skriptu, clapper og aðstoðarleikstjóra sést hér leggja klapptréið til hliðar og fá sér hádegis sundsprett í Grýluvogi við Gistiheimilið okkar.
Á meðan sinnir Atli "Herra Flatey" Grétarsson leikmyndasmiður og hönnuður sínu starfi.
Þó sólin sé ágæt þá skapar hún ýmis vandræði fyrir kvikmyndaupptökur þegar hún skín linnulaust allann daginn. Eitt vandamál er til dæmis það að birtumagn innandyra verður of mikið til þess að hægt sé að taka upp atriði sem eiga að gerast seinnipart dags eða í rökkri, þá er brugðið á það ráð að ND-a gluggana eins og ég fjallaði um í síðasta Bloggi, eða jafnvel að skerma þá alfarið af með svörtum hlemmum sem kallaðir eru flögg. Hér er glæsimennið Geir ljósameistari með sjóngler sín í forgrunni en á bakvið hann er Snorri aðstoðarmaður sem fékk það hlutverk í nokkra klukkutíma að halda flagginu kjurru í gjólunni fyrir glugga á annarri hæð.
Á meðan fóru fram myrkraverk innandyra þar sem Jóhann Sigurðarson og Laufey Elíasdóttir brugðu sér í hlutverk föður og dóttur og skröfuðu aðeins saman rétt fyrir háttatímann.
Á meðfylgjandi myndum má svo glöggt sjá að það getur verið þröng á þingi þegar taka þarf upp undir rjáfri í gömlum timburhúsum og allar deildir með sín tæki og tól þurfa að komast að.
En þó gluggar séu myrkvaðir og gluggarúður lagðar filmu til þess að minnka birtuna yfir daginn verður oft að setja upp margskonar ljós innandyra þegar rökkva tekur og halda verður sama birtumagni út upptökuna þann daginn.
Hér sjást Geir og Hinrik koma einu slíku fyrir á meðan Björn Bergsteinn kvikmyndatökumaður og "Tökuskáld" eins og hann var merktur þann daginn, mælir ljósmagnið með til þess gerðum ljósmæli.
Og á þessario mynd mundar Bergsteinn "Viewfinderinn". Apparat sem er í rauninni bara linsa með haldfangi sem hægt er að horfa í gegnum, þarfaþing þegar ákveða þarf sjónarhorn og linsugerð áður en tökuvélinni er stillt upp.
Daginn eftir var svo haldið niður á bryggju við gamla frystihúsið þar sem sérstaklega viðamikið atriði á sér stað. Aminurnar voru með í för.
Og líka hópur af Pólskættuðum Íslendingum úr Mosfellsbænum sem brugðu sér í hlutverk farandverkamanna. Hér eru þeir Jacek, Gregorz, Januscz, Rafal og Stefan í góðum gír.
Flateyjarferjan Baldur lék einnig stórt hlutverk og leysti það af hendi með stakri prýði.
Einnig nutum við liðsinnis þýskrar fjölskyldu sem brá sér í hlutverk fuglaskoðara í Flatey og féllu svona líka vel að sínum hlutverkum, hér eru þau komin upp á "Guided tours of Flatey" vagninn hjá Berki (Þröstur Leó Gunnarsson) ferðamálafrömuði og athafnaskáldi.
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og kvikmyndatökumaðurinn Bergsteinn Björgúlfsson stóðu í ströngu þann daginn, enda reyna atriði með miklum fjölda leikara yfirleitt sérstaklega á útsjónarsemi og skipulögð vinnubrögð við kvikmyndatöku.
Seinni part dags var svo haldið á haf út með Margréti Vilhjálmsdóttur, hér sést leikstjórinn einn á báti að sannreyna hvort fleyið haldi ekki örugglega vatni áður en leikkonan var sett um borð.
Þá var upptökum með Margréti lokið í bili a.m.k. og aðrir leikarar tóku hennar stað fyrir framan kvikmyndatökuvélina. Hér eru þau Sjonni (Ólafur Darri Ólafsson) og Malla (Ilmur Kristjánsdóttir) mætt til leiks.
Fyrsti tökudagur Ólafs Darra var reyndar töluverð þrekraun þar sem handritið útheimtir að persóna hans þvælist klæðalítill um eyjuna þvera og endilanga í napri morgungjólunni, en Darri skoraðist ekki undan því. Hér sést Áslaug Dröfn Sigurðardóttir "Pensill" bregða greiðu í lubban á honum á meðan Lísa Kristjánsdóttir stappar í hann stálinu á síðustu metrunum.
Það var örþreyttur leikari sem skreiddist undir sæng það kvöldið og íklega hefur hann verið töluverðan tíma að fá yl í kroppinn eftir þetta 12 tíma stripl í Flatey á nærbuxum og mittisúlpu einum klæða.
Og þá var skipt yfir í næturtökur. Upptökuliðið lagðist til svefns upp úr sex um kvöldið og reis svo úr rekkju um klukkan 3 til þess að freista þess að fanga "Töfrastundina" eða "Magic hour" eins og útlendingarnir kalla þann tíma sem bjart er við sólarupprás eða sólsetur án þess þó að sól sjáist á lofti. Í þessum ljósaskiptum dags og nætur var því haldið upp að Klausturhólum, þar sem talið er að Flateyjarklaustur hafi staðið einhverntíma á 11 öld, og allt sett á fullt enda aðeins um örfáa klukkutíma að ræða og um að gera að nýta tímann vel.
Á þessum myndum sést breytingin á ljósinu greinilega en þær eru teknar yfir rétt um tveggja klukkustunda tímabil.
Og það er fleira sem breytist heldur en ljósið. Hitastigið flakkar um þónokkrar gráður eins og eðlilegt er þegar dagur tekur við af nóttu. Þegar tökur hefjast er um að gera að klæða af sér bannsett næturkulið.
Og svo verða menn að fækka skjólflíkum eftir því sem líður á daginn. Hér nær Steingrímur hljóðmaður að teygja aðeins úr sér í morgunsólinni á milli upptakna.
Meira síðar...
Flokkur: Kvikmyndir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.