27.8.2007 | 12:53
Brúðguminn í Flatey
Velkomin á Flateyjar-bloggið. Hér geta áhugasamir skyggnst aðeins á bakvið tjöldin og slegist í för með okkur sem í þessum skrifuðu orðum vinnum að upptöku kvikmyndarinnar "Brúðguminn" í Flatey á Breiðafirði.
"Brúðguminn" er mynd á léttu nótunum um lífsgleðina og leitina að hamingjunni með ljúfsárum undirtón þó, enda ekkert ljós án skugga. Sagan fjallar um háskólakennarann Jón. sem reynir að átta sig á tilverunni og sjálfum sér eina bjarta sumarnótt í Flatey á Breiðafirði. Handritið er eftir Baltasar Kormák og undirritaðan, leikstjórn í höndum þess fyrrnefnda og um framleiðslu sér Agnes Johansen. Með helstu hlutverk fara: Hilmir Snær Guðnason, Margrét Vilhjálmsdóttir, Laufey Elíasdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Þröstur Leó Guðmundsson, Ólafur Darri Ólafsson og sá sem hér skrifar, Ólafur Egill Egilsson. Þess má svo geta að komandi jólasýning Þjóðleikhússins skartar sömu leikurum og verður byggð á sama grunni og handritið að "Brúðgumanum"
En semsagt, upptökur hófust 1. ágúst í Reykjavík, rétt fyrir utan Háskóla Íslands.
Á myndinni hér fyrir neðan má sjá kvikmyndatökuvélina okkar, útbúna með öflugri aðdráttarlinsu sem beint var að einum glugga háskólabyggingarinnar þar sem Jón (Hilmir Snær Guðnason) er að kenna. Á neðri myndinni má einnig greina Steingrím E. Guðmundsson, hljóðmann í glugganum með Hilmi.
Svo var farið inn í Háskólann og ljósum og tilheyrandi búnaði stillt upp á göngum.
Hér bregður Guðmundur Erlingsson, ljósamaður, eða "Best-Boy", aðstoðarmaður ljósameistarans eða "Gaffersins" eins og það heitir upp á ensku, sér bakvið kennaraborðið svo unnt sé að mæla ljósmagnið sem berst á andlitið á honum og stilla kvikmyndatökuvélina eftir því.
Föngulegur hópur ungmenna tók að sér að leika nemendur Jóns í langdreginni kennslustund og stóð sig með prýði.
Hér má t.d. sjá Sigurð Kjartan Kristinsson, uppstrílaðan eins og dæmigerðan Háskólanema, eða hvað...
Gretar Reynisson, myndlistarmaður og höfundur leikmyndar, fylgdist grannt með framvindu mála.
Svo var Háskólinn kvaddur og daginn eftir var haldið niður á brúnna yfir tjörnina, á Skothúsveginum, þar sem einhverjir gætu hafa rekist á kvikmyndatökulið uppúr klukkan fimm um morguninn. Dagurinn er yfirleitt tekinn snemma í kvikmyndatökum, þar sem allt snýst um að nýta dagsljósið sem best, en nú var farið sérlega árla af stað þar sem lá á að ljúka tökum á tjarnarbrúnni áður en Reykjavíkurmaraþonið hæfist, seinna um morguninn...
Svo var haldið á síðasta upptökustaðinn í Reykjavík, virðulegt timburhús í Mjóstrætinu í Grjótaþorpinu, sem gengur undir nafninu "Vinaminni" en þar hafði íbúð undirritaðs verið umbreytt í heimili Jóns. Ljósadeildin stóð aftur í ströngu og nú þurfti að breyta lýsingunni þannig að trúanlegt væri að Jón væri að snæða kvöldmat, þó að klukkan væri rétt tæplega hálfeitt á hádegi. Þá var gripið til þess ráðs að ND-a gluggana. Það er að líma svo kallaða Neutral Density plastfilmu á allar rúður og breyta þannig dagsljósi í íslenska kvöldbirtu.
Föstudaginn 3. ágúst var svo farið í ferðafötin og haldið áleiðis til Flateyjar. Á leiðinni var stoppað á heiði þar sem stutt atriði með foreldrum Jóns (Karli Guðmundssyni og Herdísi þorvaldsdóttur) var tekið upp í hressandi roki með bláleitan Snæfellsjökulinn í baksýn.
Hér fyrir ofan er verið að taka fókus, eins og sagt er, en þá mælir aðstoðartökumaðurinn, Omar Jabali, fjarlægðina frá kvikmyndatökuvélinni að viðfangsefninu með málbandi og skráir hana hjá sér, svo er hann ábyrgur fyrir því að halda öllu í réttum fókus á meðan upptöku stendur eða velja hvað á að vera í fókus og hvað ekki og stilla linsurnar eftir því "Pulla" eins og það heitir. þegar fókusinn breytist í upptöku, einhver gengur frá eða að kvikmyndatökuvélinni þá sér "Focus pullerinn", (Eða "skerpuskrúfari" eins og það útleggst á íslensku samkvæmt Eyvindi Erlendssyni leikstjóra) svo um að breyta fókusnum með sérstakri fjarstýringu sem stillir linsurnar á myndavélinni á meðan hún er í höndum kvikmyndatökumannsins og hann beinir henni að leikurunum.
Lísa Kristjánsdóttir, aðstoðarleikstjóri brosti blítt, enda stolt af nýju prjónahúfunni sinni og slétt sama þó vindurinn gnauðaði.
Steingrímur hljóðmaður var hins vegar ekki alveg jafn hress, enda er hávaðarok síst af öllu kjör aðstæður fyrir hljóðupptöku.
Gunnlaugur Egilsson bróðir minn slóst í för með okkur upp á heiðina og sá um að koma Ömmu okkar Herdísi Þorvaldsdóttur (Í hlutverki móður Jóns) örugglega aftur til byggða þegar hún hafði lokið sinni rullu þennann daginn.
Þá var stoppað í frábæran hádegismat á Stykkishólmi á Narfeyrarstofu (Þakka ábendinguna), og svo var Flateyjarferjan Baldur fermdur, sem tók drjúga stund enda ekki lítið magn af tækjabúnaði sem fylgir kvikmyndatökum yfirleitt.
Skipstjórinn á Baldri var þó einstaklega þolinmóður, og með sérlegri útsjónarsemi og lagni tókst hleðslumönnum ferjunnar að koma öllu fyrir um borð, meira að segja sexhjólinu okkar, en það eru ekki bílar í Flatey, enda ekki nema einn vegur. Enginn þarf þó að kvíða því að við séum að spóla upp viðkvæma náttúru eyjunnar, sexhjólið er á sérstökum túttuhjólum sem rétt bæla gras þar sem ekið er yfir, auk þess sem hvergi er farið nærri fuglavarpinu, en meira um það síðar.
Eftir hleðsluna var loks hægt að leysa landfestar og leggja úr höfn og þá var umsvifalaust stillt upp í tökur á ný. Á meðan kona Jóns, Anna, (Margrét Vilhjálmsdóttir) var púðruð aðeins æfðu Baltasar og Hilmir framvindu senunnar sem gerist um borð.
Svo fór gamanið að kárna, rok og rigning gerðu öllum erfitt fyrir auk þess sem drekkhlaðinn Baldur veltist aðeins meira en góðu hófi gegndi.
Allt hafðist þetta þó og innann skamms var hægt að pakka kvikmyndatökuvélinni niður og virða fyrir sér Flatey rísa úr sæ fyrir stafni Baldurs.
Á bryggjunni var margt um manninn, enda verslunarmannahelgi og íbúafjöldi eyjunnar margfaldur á við það sem vanalegt er.
Aftur var dokað við á meðan við affermdum, hér er rafstöðin okkar komin heilu og höldnu á bryggjuna, (beyglurnar voru á greyinu fyrir flutningana)
Þröstur Leó Gunnarsson, sem leikur athafnaskáldið Börk komst líka meira og minna óbeyglaður í land sem og Númi sælkerakokkur, sem átti hlé frá því að kokka fyrir Björk á tónleikaferðalagi sínu og gat komið með okkur í nokkra daga.
Að lokum var allt okkar hafurtask komið frá borði og Atli Geir, leikmyndasmiður og þúsundþjalasmiður gat andað léttar. Atli hafði farið nokkrum dögum fyrr út í eyju og eins og sést á myndunum var hann búinn að aðlagast hinu sérstaka afslappaða andrúmslofti Flateyjar fullkomlega.
Hera Ólafsdóttir, Framleiðslustjóri, sem sér um samskipti við Reykjavík og ýmsar tilfallandi redingar. Sigurlaug hlaupari, sem sendist og snýst í snúningum, og Lísa aðstoðarleikstjóri og tökustaðarstjóri voru líka glaðar með að vera lentar heilu og höldnu í Flatey eftir volkið.
Fyrsta mál á dagskrá var að koma sexhjólinu í gang og hér er það Magnús, ábúandi á Kríuhólum í Flatey og velgjörðarmaður okkar sem spreytir sig á tækinu.
Og þá hófust upptökur í Flatey. Þetta er að minnsta kosti þriðja kvikmyndatakan sem á sér stað í eyjunni, hinar eru sjónvarpsþættirnir um Nonna og Manna og kvikmynd Guðnýar Halldórsdóttur Ungfrúin Góða og Húsið. Auk þess sem stuttmynd á vegum Leiklistarskóla Íslands var tekin hér upp í kringum aldamótin síðustu.
Eins og sést á myndinni hér fyrir ofan eru flestir í tökuliðinu farnir að ganga með hjálma utandyra. Ástæðan er hinn árlegi sumardvalargestur Flateyjar, og ef marka má frekjuöskrin, hinni eiginlegi ábúandi og eigandi eyjunnar, Krían. Fyrirvaralaust steypast þær á okkur ofan úr himnunum, gaggandi reiðar og höggva í toppstykkin á okkur. Reyndar eru þær aðeins farnar að venjast við kvikmyndabröltið og kippa sér ekki mikið upp við það þó við göngum nálægt varpstöðvunum, eða þá að þær eru bara að safna kröftum í stórárás. Að minnsta kosti virðast þær vera búnar að átta sig á því hver ber ábyrgð á þessum fyrirgangi öllum því að Baltasar virðist vera þeirri eftirlætis skotmark og sá eini sem þeim hefur tekist að blóðga enn sem komið er.
En eins og sést á myndunum hafa veðurguðirnir verið okkur hliðhollir og baðað okkur sólskini þessa fyrstu daga. Hér að neðan flatmagar Förðunar og Búningadeildin upp við húsvegg. Ásta Hafþórsdóttir "Sminka" vinstra megin og Helga Stefánsdóttir búningahönnuður hægra megin.
Í næturtökunum er að vísu aðeins svalara, eins og við er að búast, og þá stendur ekki á Helgu að skaffa voðir og hlífðarföt fyrir leikarana að skýla sér með. Hér sitja Hilmir Snær og mótleikkona hans Laufey Elíasdóttir, sem túlkar persónu Þóru, undir teppi rétt undir miðnætti.
Og svo "Misstum við ljós" eins og það er kallað þegar ekki er hægt að taka lengur og urðum að pakka saman í bili og halda heim á leið í Vog, gamla gistihúsið þar sem matsalurinn okkar er staðsettur.
Og þar átum við miðnætursnarl hjá Núma við þýðan gítarleik Jóhanns Sigurðarssonar (Sem túlkar persónu Lárusar Gistihússeiganda)
Að næturverði loknum var haldið heim í Rafveitubústaðinn, og Vegamót og Ásgarð og Línukot og öll hin litlu húsin sem hýsa okkur á meðan dvölinni stendur.
Þegar ég lagðist aftur og lokaði augunum rifjuðust upp fyrir mér línur Séra Sigurðar Einarssonar í Holti sem Amma fór með í bílnum á leiðinni upp á heiðina fyrr um daginn.
Geturðu sofið um sumarnætur
Er senn kemur brosandi dagur
Hlýnar þér ekki um hjartarætur
Hve heimur vor er fagur.
Bestu kveðjur úr Flatey
Ólafur Egill Egilsson.
Flokkur: Kvikmyndir | Breytt 15.9.2007 kl. 22:59 | Facebook
Athugasemdir
Veitingastaðurinn í Stykkishólmi heitir Narfeyjarstofa......aldrei heyrt um tré sem heitir narfviður.....ekki nema að nafnið sé komið frá einhverjum sem hét Narviður sbr. Kolviður. Engu að síður nokkur gott nafn, Narviður Narviðsson.
Jóna jóns (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 23:33
Veitingastaðurinn Í Stykkishólmi heitir hvorki Narfviðarstofa né Narfeyjarstofa heldur Narfeyrarstofa :-)
Arna Sædal (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 15:05
Gangi ykkur vel í Flatey
Dásamlegur staður sem ég á góðar minningar frá í æsku
það verða allir smá skrítnir sem eru til lengdar í Flatey það sést best á mér. en annars held ég að það er frekar kostur en löstur að vera skrítinn.
Bið að heilsa í eyjuna Bogi Jóns.
Bogi Jónsson (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 17:23
Þakka ábendingun, auðvitað var það Narfeyrarstofa.
Ólafur Egilsson, 15.9.2007 kl. 23:00
...ábendinguna.
Ólafur Egilsson, 15.9.2007 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.